Select Page
Photo gallery

Sangitamiya býður upp á mjög gott úrval ukulele-strengjahljóðfæra. Um er að ræða yfir 50 mismunandi tegundir af þessu skemmtilega og hljómfagra hljóðfæri, einkum hljóðfæri frá fyrirtækinu Kala í Kaliforníu.

Kala ukulele-fyrirtækið í Kaliforníu, Bandaríkjunum, hefur verið að þróa mjög margar tegundir af ukulele hljóðfærum í öllum stærðum, en um er að ræða hágæðahljóðfæri þar sem jafnvel ódýrustu týpurnar standast allar væntingar hljóðfæraleikarans.


Lesa meira: Beginner Ukuleles  • Mahogany Ukuleles • Hágæða ukulele (High End) • Novelty Ukuleles (framandi týpur)Pocket and Travel UkulelesU-bassBanjolelesTöskur, pokar og fylgihlutir


Byrjendur

Blue Moon

Makala Dolphin

Þessi lína höfðar sérstaklega til yngstu spilara! Meira »


Mahogany Ukuleles

We stock the Makala MK line, and above that the KA line of mahogany ukuleles.

Makala MK

Kala KA line


Hágæða ukulele (High End)


Novelty Ukuleles

Ukadelic range


Pocket Ukulele

Travel Uke (Thin Line)


U-Bass / Ukulele bass

Ukulele-bassinn kom á markaðinn í október 2010, en hann er bassi í hefðbundinni stillingu, eða E-A-D-G. Hann er í sömu stærð og baritón ukulele og hefur polyurethane strengi (einskonar gúmmí), sem eru óvenju þykkir og mjúkir í senn. U-Bass kemur alltaf með pick-up til að tengja við magnara. Margir hafa lýst honum sem ferða-kontrabassa, en hljóðfærið er afar hljómfagurt og hljómmikið.


Ukulele Banjo / Banjolele

Meira 


Fylgihlutir

Kennsluefni, bækur og  DVDs

meira


Strengir

Sangitamiya býður upp á mjög gott úrval ukulele strengja fyrir allar tegundir og stærðir af ukulele.  Ein besta tegund ukulele strengja eru svokallaðir nylgut strengir frá ítalska fyrirtækinu Aquila. Venjulegir GHS nylon ukulele strengir og strengir fyrir ukulele bassa (U-bass) eru einnig fáanlegir í Sangitamiya. Meira »

Töskur og pokar (meira)


Aðrir fylgihlutir



Nokkur orð um ukulele

Saga

Ukulele (einnig stafað ukelele) er fjögurra strengja hljóðfæri sem kennt er við Hawaii eyjarnar í vestur Bandaríkjunum. Orðið „ukulele“ þýðir „hoppandi fló“ á hawaiísku, en heimamönnum þóttu fingrahreyfingar ukulele-spilaranna svo hraðar að þær líkjust hoppandi flóum. Ukulele hljóðfærið á sínar rætur að rekja í hljóðfærahefð Portúgals, en það var í lok 19.aldar að þrír portúgalar sigldu til Hawai-eyja og komu með hljóðfærið með sér. Hljómur hljóðfærisins, sem er afar léttur, bjartur og skemmtilegur, heillaði heimamennina, og þeir voru fljótir að fara að búa til sín eigin hljóðfæri. Hljóðfærið varð þekkt á alþjóðlegum vettvangi upp úr 1920 í gegnum alþjóðlegar sýningar sem haldnar voru í Bandaríkjunum, einkum í Kaliforníu.

Vinsældir ukulele hljóðfærisins hafa aukist með tímanum, bæði meðal tónlistarhlustenda sem og hljóðfæraleikara. Ukulele er einnig tilvalið hljóðfæri til þess að byrja að læra á, þar sem stillingin er afar falleg og aðgengileg, og auðvelt er því að læra að spila á hljóðfærið.

Ukulele stærðir

Ukuelele er að finna í fjórum stærðum, auk nýja ukulele-bassans. Minnstu þrjár stærðirnar kallast sópran, concert og tenor; þær hafa allar sömu stillingu, sem er opinn C-dúr hljómur með sexund, eða G-C-E-A. Sópran er minnsta stærðin og hún hentar bæði ungum sem og fullorðnum; concert er miðstór týpa, og tenór er stærst ef þessum þrem, og er sú stærð tilvalin í tónleikahaldi og höfðar sterkt til gítarleikara sem eru vanari að spila á stærra hljóðfæri.

Fjórða stærðin heitir baritónn, en hún er í sömu stillingu og efstu fjórir strengir á gítar, eða D-G-H-E.